laugardagur, febrúar 23, 2008

Plaggöt Femínistafélags Háskóla Íslands

Vildi bara sýna ykkur plaggötin okkar sem eru komin upp á veggi Háskólans!



fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Útlönd?

Já, heldur betur! Ég er sem sagt að láta drauma mína rætast, bókstaflega. Þannig er mál með vexti að um daginn dreymdi mig að ég væri í útlöndum og vaknaði því með rosalega löngun til að komast af þessu skeri sem við búum á. Löngunin dofnaði ekki svo núna er ég búin að kaupa mér flugmiða og er á leiðinni að heimsækja systur mína til Þýskalands í páskafríinu! :D Mikið verður gott að komast úr þessum snjó, rigningu, hálku og ógeðisveðri. Reyndar ekki ólíklegt að það rigni í Þýskalandi í mars, en það verður þó rigning í öðru umhverfi :)

Annað sem hefur drifið á daga mína á þessu tiltölulega nýja ári er bara ýmislegt...svona fyrir utan skólann og lærdóminn sem honum fylgir...
...ég byrjaði árið almennilega og dreif mig upp í bústað með SLAKK-hópnum fyrstu helgina í janúar. Við skemmtum okkur ROSALEGA rétt eins og venjulega, það var farið í pottinn, spilað, farið í singstar og margt fleira skemmtilegt

Í lok janúar fórum við Eva að sjá Pam Ann í Tjarnabíó sem er uppistand sem fjallar um allt það sem flugfreyjur vilja segja/gera en mega ekki. Mjög fyndið og skemmtilegt, og hæfilega klúrt fyrir mig og Evu!

Febrúar-mánuður hófst svo, eins og allir eiga að vita, á ársafmæli mínu og Baldurs. Núna er sambandið okkar orðið eins árs gamalt og þreytt...hehe ;) Í tilefni af því bauð ég Baldri á Argentínu og dróg hann svo með mér á Flughótelið í Keflavík, þar sem við gistum í eina nótt.
Takk fyrir félagsskapinn Baldur minn!

Síðustu helgi var svo SLAKK-matarboð, þar sem við borðuðum allar alltof mikið. Sunna og Heiða sáu um að matreiða dýrindis pizzur og fengum við svo súkkulaði muffins með súkkulaðisósu og ís í eftirrétt. En við létum ekki þar við sitja heldur gúffuðum í okkur auk þess nammi og áfengi:D

Fleira merkilegt hefur nú ekki gerst hjá mér undanfarið, nema auðvitað að ég er að fara til ÚTLANDA jei!!!

Kv. Kolbrún Eva

Lag dagsins er Tranquilize með The Killers

fimmtudagur, janúar 03, 2008

Gleðilegt nýtt ár!

Þá er nýtt ár gengið í garð og tími til að kveðja mjög skemmtilegt og viðburðarmikið ár, árið 2007!

Samantekt yfir nokkra af helstu viðburðum í mínu lífi árið 2007:

Janúar:
Ég fagnaði nýju ári í mínu öðru heimalandi, Þýskalandi, með systur minni, Henning og fleirum skemmtilegum. Ég entist þó ekki lengi frá fróninu á nýja árinu og snéri heim þann 3.jan og byrjaði í nýrri vinnu þann 4. jan --> hjá Ferðaþjónustu bænda :D
Að sjálfsögðu var svo haldið veglega upp á tvítugsafmælið mitt í góðra vina hópi!!!

Febrúar:
Það merkilegasta sem gerðist í þeim mánuði var að ég byrjaði með honum Baldri mínum og senn líður að því að við séum búin að vera saman ár! Frábært ár:D
Ekki má svo gleyma að Gunnar átti afmæli og að systir mín kíkti á klakann

Mars:
Pabbi hélt upp á fimmtugs afmælið sitt! Og einnig áttu Hafdís og Óli afmæli!
Einnig fór ég konukvöld létt 96.7 með Evu! Í lok mánaðarins fórum við Baldur svo upp í sumarbústað með Evu og Gunna og höfðum það notalegt!

Apríl:
Heiða mín átti afmæli og varð 21 árs gömul! Spilakvöld var haldið henni til heiðurs!
Lísbet átti svo líka afmæli þann 23. apríl :D Ksenia, Tinna og Birkir áttu einnig afmæli í apríl!

Maí:
Eurovision var og var grillað og borðað yfir því...nammi namm.
Þórir átti afmæli og varð ennþá eldri! Fór í próf í stæ. fjarnáminu mínu og kláraði það með stæl:D Einnig fórum við Baldur að sjá Pabbann í Iðnó, skemmtilega fyndið stykki!
Kíktum líka á Þingvelli í lok mánaðarins:D

Júní:
Eva Rún átti afmæli þann 7. júní:D
Farið var í sumarbústað með Baldri, Kötu, Heiðu og Bjössa sem var vægast sagt skrautleg ferð!
Ég fór til Ungverjalands og Austurríkis með Bændaferðum sem aðstoðarmanneskja, sú ferð var lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma

Júlí:
Sunna mín og Láran áttu báðar afmæli þann 17. júlí og Biggi afmæli þann 12. júlí!
Farið var í útilegu með Baldri, Heiðu og Bjössa, Lísbeti og Hafsteini, Heiðdísi og Davíði, Katrínu og Hildi.
Einnig skelltum við Baldur okkur til London og gerðum þar ýmislegt skemmtilegt og eftirminnilegt:D

Ágúst:
Verslunarmannahelgin gekk í garð og Kata átti afmæli þann 22. ágúst!
Ég og Heiða fórum til NY að heimsækja Sunnuna okkar og var það æðisleg ferð:D:D

September:
Kolbrún hóf nám við Háskóla Íslands í viðskiptafræði! Baldur átti afmæli 17. september og varð 24 ára gamall og mamma átti afmæli þann 29. september

Október:
Bryndís átti stórafmæli þann 20. október og varð hvorki meira né minna 25 ára gömul!
Í tilefni þess kom hún á klakann að heimsækja MIG...okkur:D Sunna kom heim frá U S and A :D:D:D:D:D:D:D
Helga átti líka afmæli þann 20. október og varð hún 24 ára!

Nóvember:
Í nóvember áttu Lilja, Inga og Rúna afmæli! Og var mér boðið í partý til þeirra allra:D
Einnig fórum við Baldur að sjá Leg í Þjóðleikhúsinu:)
Próflestur hófst hægt og bítandi...

Desember:
Próf og próflestur einkenndu næstum allan mánuðinn, en þegar prófum var lokið var skipt yfir í jólagírinn, allar jólagjafirnar voru keyptar á tveimur dögum og þeim pakkað inn langt eftir nóttu. Bryndís kom og var hjá okkur um jólin. Ég átti afmæli og er orðin 21 árs gömul, takk fyrir allar gjafirnar og kveðjurnar bæði jóla og afmælis!
Á gamlárs var borðað hjá ömmu og horft á skaupið svo upp úr miðnætti var haldið í partý til Ingunnar og Þóris þar sem notalegheitin réðu ríkjum til 8 um morguninn:D

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!

Ef ég er að gleyma eða rugla einhverju endilega látið mig vita...;)

Kv. Kolbrún Eva

Lag dagsins er Set the Fire to the Third Bar með Snow Patrol


þriðjudagur, september 25, 2007

Langþráð blogg

Já þið eruð að sjá rétt, Kolbrún Eva er í alvörunni búin að blogga, þetta eru ekki ofsjónir ;)
Persónulega finnst mér samt bara allt í lagi að ég hafi ekki verið að blogga og skal ég færa rök fyrir máli mínu:
ástæða nr.1: það er ekkert merkilegt búið að gerast í mínu lífi um skeið núna
ástæða nr.2: tímaleysi, mikið að gera í skólanum og svo er vinnan líka smá tímaþjófur
en nóg um kvart í bili, mér finnst fínt að hafa mikið að gera, og þótt það gerist ekki ýkja merkilegir hlutir í mínu lífi er ég samt sem áður mjög ánægð með lífið og tilveruna:D

Það hefur nú samt eitthvað smá gerst síðan ég bloggaði síðast, sem var þegar ég kom heim frá London í lok júlí, smá tími síðan þá :|
Ég og Heiða fórum til New York í US and A að heimsækja Sunnu okkar í lok ágúst og það var GEÐVEIKT GAMAN!!! Það er skemmtileg lífsreynsla að hitta Sunnu svona aftur eftir 10 langa og einmanna mánuði! Og ekki verra í svona skemmtilegri stórborg!!
Við vorum nú ekki lengi og náðum ekki að gera nema svona 0.1% af því sem er hægt að gera þarna, en það sem við gerðum var mjög gaman. t.d.
1. að standa á Times Square --> upplifun
2. fórum allar í klippingu, facial og manicure
3. labba 5th Avenue er gaman, Tiffany's:D
4. sightseeing, the chrysler building, rockefeller center, ground zero, united nations, trump tower og og og...
5. sex and the city sight seeing tour ;)
6. New York comedy club að sjá uppistand er mjög gaman

En svona all in all er New York very nice :D:D


Eftir New York byrjaði ég svo í háskólanum og hætti hjá FB í fullu starfi og er sem sagt núna í hlutastarfi með skólanum, nóg að gera!
Læralæralæra, sem er eiginlega bara gaman! :D

En nú hef ég ekki meira að segja í bili

Þangað til næst (sem gæti dregist),
ykkar Kolbrún Eva

Lag dagsins er Fix You með Coldplay

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Komin heim

Já, ég er komin heim eftir vel heppnaða ferð til London! Ég hefði alveg verið til í að vera lengur, en helgi er allavega helgi :D
Ég og Baldur tókum okkur vel út sem túristar, alltaf með Subway kortin að vopni ;)
Dagskrá helgarinnar:
*Laugardagur:
--> flug út + slappað af á hótelinu
--> út að borða á Ask
--> West End að sjá Spamalot :D:D
*Sunnudagur:
--> Madame Tussauds
--> Science Museum
--> London Eye
*Mánudagur:
--> Pakkað
--> Star Wars sýning
--> Oxford Street
--> Hlaup á leið og á flugvellinum ;)

Allt í allt mjög skemmtilegt ferð :D:D
Og nú er bara að bíða eftir næstu ferð, sem er eftir tvær vikur, NEW YORK!!!!!!!!!!!!!
Það er rétt tilgetið ég hlakka óheyrilega mikið til! Auðvitað gaman að koma í fyrsta skipti til US and A en ennþá skemmtilegra að hitta Sunnu í aftur eftir alltof marga mánuði...10 mánuði!!!
Hvað er betra heldur en frí með bestu vinkonum sínum? Any ideas? (væmið ég veit :/ )

Allavega ekki mikið annað að gerast hjá mér þessa dagana, bara vinna og bíða eftir að byrja í háskólanum

Ég hef ekki neitt að segja nema lesa HARRY POTTER and the Deathly Hollows!

Kv. Kolbrún Eva

Lag dagsins er International með Páli Óskari




þriðjudagur, júlí 17, 2007

London baby!

Já, það er rétt ég er að fara til London!!! JEI! Og það er ekki einu sinni langt þangað til, bara ca. ein og hálf vika...viti menn ;)
Ég og Baldur erum sem sagt að fara í helgarferð til London um þar næstu helgi. Ég var komin með löngun til að fara til útlanda, eina ferðina enn, og að sjálfsögðu náði ég að sannfæra karlinn um að hann langaði rosalega til London með mér ;)
Planið er sem sagt að vera túristi eina helgi, ætlum að skoða vaxmyndasafnið, London eye, fara í leikhús og margt fleira. Þið fáið að vita meira um það þegar við erum komin heim aftur!

Annað sem hefur drifið á mína daga síðan í lok APRÍL!!! er bara ágætlega mikið held ég ;)
Hmm...
--> ég kláraði stærðfræði fjarnámið mitt og fékk 10 í lokaeinkunn! (já, ég ætla að monta
mig!!!)

-->Þórir átti afmæli 7.maí, Eva átti afmæli 7.júní, Þórdís átti afmæli 19. júní = TIL
HAMINGJU!

--> Sumarbústaðarferð með Heiðu, Kötu, Baldri, Bjössa og Björgúlfi í Mánaseli
--> Ég fór til Ungverjalands og Austurríkis á vegum vinnunnar til að vinna
--> Borgaði skólagjöldin í HÍ sem þýðir að ég er formlega að byrja í háskóla 3.september
--> Fór í ökumat og má þ.a.l. ennþá keyra á götum úti, mörgum til mikilla ama ;)
--> Vinna, vinna, vinna!
--> Biggi átti afmæli 12. júlí, TIL HAMINGJU

Og meira held ég að sé ekki búið að gerast, ég man allavega ekki meira svona án þess að þurfa að fara að hugsa eitthvað meira en ég er vön!

Það er þó annað sem VERÐUR að komast á framfæri:
SUNNA OG LÁRA eiga AFMÆLI í dag og eru báðar 21 ÁRS í dag!!!
TIL HAMINGJU með afmælið báðar tvær!!!
Og já, mig langar í svona köku!

Ég veit ekki hversu dugleg ég verð að blogga á næstunni, þar sem ég virðist ekki geta haldið þessu almennilega til streitu, svo ég ætla bara að segja svona fyrir fram hvað er planað...
þið megið ekki missa af neinu ;)

--> Slakk útilega næstu helgi
--> London þar næstu helgi
--> Verslunarmannahelgi, Akureyri vs. Eva
--> Vinna, vinna og vinna aðeins meira
--> New York = SUNNA
--> Háskóli byrjar
--> Læra, læra og læra aðeins meira
--> Læra
--> Læra...ég reikna með að ég verði frekar mikið með nefið ofan í bókum næstu segjum 5 árin?

Jæja, bless í bili...

Kv. Kolbrún Eva

Lag dagsins er Supermassive Black Hole með Muse


mánudagur, apríl 30, 2007

New York, New York


Það hefur verið ákveðið, ég og Heiða (og kannski Kata) ætlum að heimsækja okkar ástkæru Sunnu til the US and A. Það er ennþá LANGT í þetta, en ekki of langt til að byrja að plana;)
Við förum sem sagt út í lok ágúst og er planið að missa okkur i kaupum (allt er til í Bandaríkjunum) og fara í sightseeing, skoða frelsisstyttuna og margt margt margt fleira:D

Að öðru leyti finnst mér ekki mikið hafa drifið á mína daga, nema þá að ég fæ þann heiður núna að hitta Heiðu mína aðeins oftar, þar sem Bjössi er erlendis! Við byrjuðum einmitt að fagna brottför hans á föstudaginn með því að skella okkur út að borða á Ítalíu. Maturinn var alltof góður og eins og okkur Heiðu er einum lagið borðuðum við á okkur gat.
Ein skemmtilegt tilviljun þetta kvöld: Eins og flestir vita kynntumst við Heiða fyrir tveimur árum í ferð til Ítalíu í bæ/borg sem heitir Bari. Eins og aðeins færri en samt flestir vita líka er að borðin á Ítalíu (veitingastaðnum í þetta skiptið) heita eftir stöðum á Ítalíu (landinu;) ). Í fyrsta skiptið sem ég og Heiða förum saman á Ítalíu sátum við við borðið sem hét Bari;) Okkur fannst þetta mjög fyndin og skemmtileg tilviljun!

Eftir yndislegan kvöldverð skildu leiðir okkar en við hittumst aftur daginn eftir hressar og kátar og kíktum á myndina Blades of Glory! Fórum í bíó kl.14 með öllum litlu krökkunum sem var sérlega fyndið þar sem myndin byggist að miklu leyti upp á frekar klúrum bröndurum sem enginn í salnum nema ég og Heiða hlógum að. Einfaldlega vegna þess að það skildi þetta enginn nema við tvær, aðeins of ungir áhorfendur :/
En ég mæli með þessari mynd, hún var mun skemmtilegri en ég hélt.



Annars er voða lítið í fréttum og óska ég ykkur allra góðrar skemmtunar í fríinu á morgun:D

Hérna er eitt fyndið: www.funnyordie.com --> The Landlord

Kv. Kolbrún Eva

Lag dagsins er Our House með Madness